Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við Rannveigu Guðmundsdóttur.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Rannveigu Guðmundsdóttur um að leika með kvennaliði Tindastóls næsta vetur. Rannveig kemur til Tindastóls frá Njarðvík en áður hafði hún spilað með Valencia á Spáni, hún mun einnig vera í Körfuboltakademíu Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Helgi Freyr þjálfari segist mjög glaður með komu Rannveigar til liðsins “Hún er jákvæður og metnaðarfullur leikmaður sem við hlökkum til að vinna með í vetur. Rannveig er hávaxin og kröftug og spilar sem miðherji”
Við bjóðum Rannveigu hjartanlega velkomna á Krókinn og hlökkum til að sjá hana spila í Síkinu í vetur.
🎨grafík: @hhalldors