ÓB-mót stúlkna

ÓB - mót stúlkna verður haldið 22. - 23. júní 2024 á Sauðárkróki. ÓB-mót Tindastóls er haldið fyrir stúlkur í 6. flokki.

Skráning á mótið er hafin og er hægt að skrá lið á netfangið mot.tindastoll@gmail.com

Leikir hefjast laugardaginn 22. júní um kl. 9 og reiknað með að síðustu leikir verði sunnudaginn 23. júní kl. 15:00. 

Á laugardeginum er skemmtilegt 8. flokksmót sem er í boði fyrir yngri fótboltahetjur, en þetta er tilvalið fyrir systkini og vini. 

Þátttakendur síðustu ár hafa verið í kringum 700 talsins og skapast mikil stemning í kringum liðin. Það er stutt í gistiaðstöðu liða yfir á keppnisvelli.

Sundlaugin og önnur þjónusta er síðan í göngufæri frá vallarsvæði. 

Tjaldsvæði er fyrir ofan keppnisvöll og stutt að ganga niður á keppnissvæði fyrir fjölskyldur og stuðningsmenn. 

Mótstjóri Ób-mótsins er Steinunn Gunnsteinsdóttir - símanr. 865-5146

Verið hjartanlega velkomin í Skagafjörð.

 

 Ób_Mót_24