Æfingagjöld og iðkendaskráning

Æfingagjöld fyrir sumarið 2020.

            - 3. - 4. flokkur karla og kvenna: 25.000 kr                                          
            - 5. flokkur karla og kvenna:       25.000 kr                                                       
            - 6. - 7. flokkur karla og kvenna: 25.000 kr                                          
            - 8. flokkur karla og kvenna:       15.000 kr 

- Systkinaafsláttur er 25%                                                                                           
- Ef þið eigið rétt á og viljið nýta ykkur hvatapeninga þá er einungis hægt að greiða í gegn um kerfið okkar.

Allar skráningar iðkenda fara fram í gegnum Sportabler.  Þar inni eru allar upplýsingar sem við höfum um iðkendurnar okkar eins og tölvupóst, símanúmer ofl. Þessar upplýsingar fara svo áfram til þjálfara þess flokks sem barnið er í. Við viljum því biðja ykkur að yfirfara þessar upplýsingar og passa að þær séu réttar um leið og þið skráið börnin. 

  1. Hægt er að fá æfingagjöldunum skipt í allt að 3 greiðslur á heimabanka eða á kreditkort. Athugið að ef þið veljið að fá æfingagjöldin inn á heimabanka þá bætist við seðilgjald (390kr) á hvern seðil. Ef seðillinn er ekki greiddur fyrir eindaga þá fer hann sjálfkrafa í innheimtu hjá Motus. Þannig að hafið samband tímanlega ef þið sjáið fram á að geta ekki greitt á réttum tíma. 
  2. Athugið að fyrir fyrsta barn er greitt fullt gjald í kerfinu. 25% afslátturinn af fyrsta og öðru barni kemur svo til frádráttar af æfingagjöldum barns númer tvö, þrjú o.s.frv.
  3. Hvatapeningar eru nýttir með því að haka í "Nýta hvatapeninga" á síðunni þar sem greiðslufyrirkomulag er ákveðið.
  4. Ef þið lendið í vandræðum þá er hægt að hafa samband við barna og unglingaráð : fotbolti.unglingarad@tindastoll.is
  5. Æfingagjöld verða ekki endurgreidd nema í sérstökum tilfellum. Til dæmis ef um langvarandi veikindi er að ræða. Sendið fyrirspurn á fotbolti.unglingarad@tindastoll.is