Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við Ingu Sigríði Jóhannsdóttur!

Inga Sigríður Jóhannsdóttir hefur gengið til liðs við Körfuknattleiksdeild Tindastóls og mun spila með liðinu á næsta tímabili. Inga Sigríður, sem er 19 ára, er efnilegur leikmaður og mun einnig vera í Körfuboltaakademíu Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. “Inga Sigríður er með mikinn kraft og vilja til að gera vel á báðum endum vallarins. Hún spilaði mikið á síðasta tímabili í þessari deild og öðlaðist þar mikla reynslu í erfiðu verkefni með Breiðablik b. Inga Sigríður var valin efnilegasti leikmaður Breiðabliks eftir síðasta tímabil og erum við mjög glöð að hafa tryggt okkur krafta hennar í vetur.“ segir Helgi Freyr þjálfari liðsins.
🎨grafík: Þórður Grétar Árnason