Kkd Tindastóls semur við Aníku Lindu Hjálmarsdóttur.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls heldur áfram að styrkja kvennaliðið og hefur nú samið við Aníku Lindu Hjálmarsdóttur sem kemur til Tindastóls frá ÍR. Helgi Freyr þjálfari segist mjög spenntur fyrir komu Aníku til félagsins. “Aníka er flottur leikmaður sem mun efla liðsheildina. Hún kemur með góða vídd í liðið og reynslu úr Subway-deildinni þar sem hún hefur sýnt að hún getur spilað á meðal þeirra bestu.“
Við bjóðum Aníku hjartanlega velkomna norður og hlökkum til að sjá hana í Síkinu á komandi tímabili.
Áfram Tindastóll!