Hvalreki á fjörur Tindastóls.

Hvalreki á fjörur Tindastóls
Gengið hefur verið frá samkomulagi um að enski körfuknattleiksmaðurinn Callum Lawson, sem gert hefur garðinn frægan hérlendis með Val og þar áður Þór Þorlákshöfn, leiki með Tindastóli á komandi keppnistímabili íslenska körfuboltans. Hann hefur allar götur frá komu sinni inn til landsins verið yfirburðamaður í liðum sínum og vann meðal annars með þeim Íslandsmeistaratitla árin 2021 og 2022 og að auki bikarmeistaratitill árin 2023. Callum er þannig fæddur sigurvegari og er staðráðinn í að halda afram á þeirri braut með Tindastóli næsta vetur.
Callum Lawson: „Ég hef oft spilað á móti Tindastóli á síðustu árum og alltaf dáðst að þessari miklu stemningu og stórkostlegu umgjörð sem er í kringum liðið. Það hefur verið mikil áskorun að mæta í Síkið og kljást við bæði frábæra leikmenn og einstakt andrúmsloft. Úrslitarimman á milli okkar í Val og Tindastóli sl. vor er upplifun sem ég mun aldrei gleyma. Nú mun ég njóta þess að vera með en ekki á móti öllu fjörinu á Sauðárkróki og ég hlakka mikið til að vinna bæði með Pavel og strákunum í liðinu að því verkefni að verja þann langþráða Íslandsmeistaratitil sem náðist í höfn sl. vor.“
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls:
Callum á vafalaust eftir að verða mikill máttarstólpi í liði okkar á komandi vetri. Hann er fjölhæfur leikmaður sem hefur liðið sitt ávallt í fyrirrúmi. Skorar sjálfur, vinnur fráköst, vinnur varnarvinnuna sína um allan völl en matar líka félaga sína eldsnöggt á sóknarfærum með ótrúlegri útsjónarsemi. Það dýrmætasta af öllu er samt hve hann er mikill leiðtogi jafnt innan vallar sem utan. Þess vegna hefur hann lengi verið efstur á óskalistanum
Dagur Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls: „Þetta er mikill hvalreki á okkar fjörur og enn ein staðfesting þess að Tindastóll er orðinn valkostur fyrir körfuknattleiksmenn í allra hæsta gæðaflokki hér á Íslandi. Callum hittir hér gamla félaga og ég er sannfærður um að hann muni styrkja liðsheildina og falla vel inn í þann sterka hóp sem nú býr sig undir átökin á komandi vetri.
Ljósmynd: Davíð Már Sigurðsson
Grafík: Halldór Halldórsson