Helgi Freyr ráðinn nýr þjálfari Meistarflokks Kvenna í körfubolta.

Helgi Freyr Margeirsson nýr þjálfari meistaraflokks kvenna! Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Helga Frey um að taka að sér þjálfun meistaraflokks kvenna. Helgi mun einnig stýra Körfuboltaakademíu FNV sem og að vinna að  Evrópukeppnisverkefni meistaraflokk karla. Helgi Freyr hefur unnið ötullega að uppbyggingu körfuboltastarfsins, bæði sem leikmaður, þjálfari, sjálfboðaliði og öflugu starfi Körfuboltaskóla Norðurlands. Það er markmið Körfuknattleiksdeildar Tindastóls að byggja upp öflugt starf til framtíðar, að halda úti öflugu kvennaliði jafnt sem karlaliði og að þær spili í deild hinna bestu innan fárra ára.