Þarftu að panta nýjan körfuboltabúning?

Unglingaráð körfuboltadeildar Tindastóls tekur nú á móti pöntunum á körfuboltabúningum fyrir iðkendur. Búningurinn kostar 7.500 kr. eftir niðurgreiðslu frá félaginu.

Nánari upplýsingar og pöntunarseðil er að finna hér: Pöntunarseðill fyrir búninga

Greiða þarf við afhendingu búnings eða með því að leggja inn á bankareikning unglingaráðs, með búningur í skýringu og senda rafræna kvittun á netfangið karfa-unglingarad@tindastoll.is. Bankareikningurinn er 1125-26-390 kt. 690390-1169.

Nánari upplýsingar gefur Sædís Bylgja í síma 847 9618 og á netfanginu saedisbylgja@gmail.com