Það er risa nágrannaslagur næstkomandi föstudag

Það er risa nágrannaslagur næstkomandi föstudag hjá mfl karla á Akureyri við Þórsaranna. Það verður boðið uppá sætaferð á leikinn og er það algjör skylda að fólk nýti sér þetta og sýni strákunum stuðning með því að mæta og styðja við bakið á þeim. Höfum við aðgang að 46 manna rútu þar sem við þurfum að nýta hvert sæti. Ætlum við að halda verðinu í algjöru lámarki eða 1500kr sætið. Endilega að senda tölvupóst og kvitta fyrir sætið á karfa@tindastoll.is. En til þess að þetta verði að veruleika þarf fólk helst að vera búið að skrá sig fyrir miðvikudagskvöld.

f/h Körfuknattleiksdeildar Stefán Jónsson Formaður.