Unglingaflokkur í undanúrslit

Unglingaflokkur Tindastóls sigraði KR 105-100 í kvöld og er þar með kominn í undanúrslit íslandsmótsins. 

Jafnræði var með liðunum lengst af í leiknum en Tindastóll þó aðeins yfir allan leikinn. Staðan var 28-21 eftir fyrsta leikhluta, 58-49 í hálfleik og 85-76 að loknum þriðja leikhluta. Í fjórða leikhluta þjörmuðu KR-ingar verulega að okkar mönnum og þegar tvær mínútur lifðu af leiknum höfðu þeir minnkað muninn í aðeins tvö stig, 97-95. Tindastólsstrákarnir héldu hins vegar út og unnu 105-100. 

Stig Tindastóls: Ingvi með 28 stig, Pétur með 24, Þröstur 14, Sigurður Páll 11, Friðrik Stefáns 11, Hannes 9 og Viðar 8.

Í undanúrslitum leika strákarnir gegn Skallagrími/Snæfelli í Hólminum á þriðjudaginn í næstu viku.