Toppslagur í kvöld

Nú eru strákarnir okkar á leiðinni í Vesturbæinn og sækja KR-inga heim. Bæði lið hafa unnið fyrstu tvo leikina í deildinni og er því ljóst að annað þeirra siglir fram úr hinu í kvöld á stigatöflunni. 
Leikurinn hefst kl:19.15 og verður hann sýndur beint á KR-TV. Þeir sem eru á Króknum eru hvattir til þess að mæta á Ólafshús til að horfa á leikinn á risatjaldi. Sumir vilja kannski nota tækifærið og gæða sér á pizzu í leiðinni en hægt er að kaupa pizzahlaðborð á kr.1.500 fyrir fullorðna og kr. 750 fyrir börn.
Einnig hvetjum við okkar frábæru stuðningsmenn á höfuðborgarsvæðinu að mæta í kvöld og láta í sér heyra.
Áfram Tindastóll!