Sumaræfingar í körfubolta

Sumaræfingarnar í körfubolta eru að fara af stað aftur eftir tveggja vikna frí. Verða þær áfram í umsjón Helga Freys Margeirssonar. Verða æfingarnar á mánudögum kl. 16:30-18:00 og á miðvikudögum kl. 17:30-19:00. Fyrsta æfingin í júlí verður miðvikudaginn 2.

Framundan er unglingalandsmót á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina og fyrir þá sem ætla að keppa í körfubolta þar er um að gera að nýta sér þessar æfingar. Eins er gott að nýta æfingar á sumrin  til að æfa boltameðferð og skot.