Helgin framundan

Dagskráin er sem fyrr nokkuð þétt hjá okkur Tindastóls fólki. Eftir naumt tap á móti KR-ingum í Dominos-deildinni fara yngri flokkar okkar af stað aftur.
8. flokkur drengja fer suður í Rimaskóla og keppir á fyrstu törneringu vetrarins undir stjórn Darrel Lewis. Mæta þeir Ármanni, Grindavík, Breiðablik og Fjölni. 
Stúlknaflokkur og drengjaflokkar fara saman suður á laugardagsmorgni og keppa stúlkurnar við Hauka í Schenkerhöllinni og strákarnir fara í Dalhús og mæta Fjölni. Leikurinn hjá strákunum byrjar kl:13.20 en hjá stelpunum kl: 15.00.
Þá á unglingaflokkur leik á móti Stjörnunni hér heima á sunnudeginum og hefst sá leikur kl:12.00.
Skemmtileg helgi framundan eins og alltaf,
áfram Tindastóll!