Darrel Keith Lewis genginn til liðs við Tindastól.

Tindastóll og Darrel Keith Lewis hafa komist að samkomulagi um að hann verði leikmaður Tindastóls á næsta tímabili. Darrel K. Lewis er þekkt stærð í boltanum og hefur undanfarin tvö tímabil leikið með liði Keflavíkur og lék á síðasta tímabili í rúmar 33 min að meðatali og skoraði tæp 21 stig og tók 6 fráköst að meðaltali í leik . Stjórn Kkd Tindastóls lýsir yfir mikilli ánægju með að Lewis sé orðinn leikmaður Tindastóls og þess má líka geta að Lewis er með Íslenskan ríkisborgararétt líkt og félagi hans og vinur Darrell Flake, munu þeir félagar nú sameinast með liði Tindastóls. Telur stjórn Kkd að Darrel K. Lewis sé sá leikmaður sem liðið þarfnist fyrir átök vetrarins og geti hjálpað okkar liði í  að ná árangri.

f/h Stjórn Kkd Tindastóls
Stefán Jónsson Formaður.