Aðalfundur körfuknattleiksdeildar fór fram í gær.

Stjórn körfuknattleiksdeildar var endurkjörin á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Aðalfundur Kkd var haldin á skrifstofu félagsins í gær og voru þar á dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf. Fundarstjóri var kosinn Eiríkur Loftsson og leiddi hann fundinn af mikilli fagmennsku. Fóru formenn stjórnar og unglingaráðs með skýrslur sinnar deildar og gjaldkerar deildanna fóru yfir reikninga félagsins, voru þeir samþykktir af fundargestum. Lítisháttar hagnaður varð bæði af stjórn deildarinnar og unglingarráði. Kom fram ein tillaga að stjórn á fundinum og var hún samþykkt einróma á fundinum. Stjórn Kkd skipa næsta árið Stefán Jónsson formaður, Una Sigurðardóttir gjaldkeri, Björn  Hansen, Hafdís Einarsdóttir og Ólafur Björn Stefánsson.