8. - 11. nóvember

Um helgina verða þrír flokkar á ferðalagi en einn keppir hér heima. 10.flokkur drengja eru þeir sem detta í lukkupottinn og leika heima á morgun og sunnudaginn. 9. flokkur stúlkna fer á Stykkishólm og keppir þar á törneringu. 
Að auki fara strákarnir í drengja- og unglingaflokki suður á morgun en drengjaflokkur á leik gegn KR á morgun kl:18.00 og unglingaflokkur kl:13.00 á sunnudaginn gegn FSu. 
Leikirnir hér heima hjá 10. flokki drengja eru kl: 14.00 og 15.15 á laugardeginum og kl: 10.15 á sunnudagsmorgni.
Stúlknaflokkur fer svo norður á Akureyri á þriðjudaginn næsta (11.nóvember) og keppir á móti Þór Akureyri kl: 20.00 í Síðuskóla
Áfram Tindastóll!