Max Touloute valinn í landslið Haiti

Max Touloute sem spilaði með Tindastól og væntanlega flestir Króksarar tóku eftir síðasta sumar hefur verið valinn í landslið Haiti. Haiti mun spila leik gegn Grenada eftir helgi og verður áhugavert hvort Max muni spila þann leik. Haiti er númer 57 á styrkleikalista FIFA en þess má til gamans geta að við Íslendingar vermum sæti númer 96 á þeim lista. Knattspyrnudeildin óskar Max til hamingju með þennan árangur. 

Hérna má sjá myndband sem hann gerði um sjálfan sig eftir Leiknisleikinn