Vel heppnað ÓB-mót Tindastóls

ÓB mót Tindastóls var haldið helgina 23.-25. júni sl. á Sauðárkróki fyrir 6. flokkk kvenna í knattspyrnu. 
 
Mótið í ár var nú haldið í 18. sinn og voru yfir 550 keppendur skráðir til leiks frá tuttugu félögum, víðs vegar af að landinu. Spilaður var 5 manna bolti og voru spilaðir samtals 339 leikir.
Það voru því rétt tæplega 100 lið mætt til leiks og að þessu sinni lék veðrið heldur betur við keppendur og mótsgesti. Leikið var á tólf völlum á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki og voru veðurguðirnir með í liði þessa helgina. Að auki fór fram  systkinamót fyrir yngri mótsgesti á laugardeginum. 
 
Sigurvegarar styrkleikaflokkanna voru: 
Drangey – Stjarnan
Málmey - KR Ólöf Freyja
Þórðarhöfði – Breiðablik
Feykir - Breiðablik 
Molduxi – Breiðablik
Mælifellshnjúkur – FH
 
FH fékk háttvísiverðlaun Landsbankans og KSÍ

Barna- og unglingaráð og Knattspyrnudeild Tindastóls þakka öllum þeim sjálfboðaliðum sem komu að mótinu. Án sjálfboðaliða væru engin mót.