Aðalfundur aðalstjórnar Tindastóls haldinn í Húsi frítímans

Aðalfundur aðalstjórnar UMF Tindastóls fór fram í Húsi frítímans fimmtudaginn 26. mars sl. Fundurinn var vel sóttur og fóru fram hefðbundin aðalfundastörf.

Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins. Formaður var kjörinn Ingi Björgvin Kristjánsson, gjaldkeri Ægir Örn Ægisson og ritari Thelma Knúts. Meðstjórnendur voru kjörnir Baldvin Bjarki Baldvinsson, Guðmundur Haukur Þorleifsson og Gunnar Traustason.

Fráfarandi stjórn skipuðu Magnús Barðdal Reynisson, formaður, Stefán Árnason, gjaldkeri, og Sigurlína Erla Magnúsdóttir, ritari. Þau láta nú af störfum eftir farsælt starf í þágu félagsins.

 

Á fundinum var einnig veittur starfsbikar Tindastóls, en hann hlaut Annika Líf Maríudóttir Noack fyrir óeigingjarnt og afar mikilvægt starf sitt fyrir júdódeild Tindastóls.

Jafnframt voru veittir styrkir úr Minningarsjóði Rúnars Inga Björnssonar til eftirfarandi aðila:

flokkur kvk. (14 ára) körfubolti Tindastóll/Skallagrímur vegna þátttöku í Scania Cup í Svíþjóð um páskana 2026 – 100.000 kr.
Emma Katrín Helgadóttir vegna landsliðsverkefna í badminton, m.a. æfingabúða og undirbúnings fyrir EM U19 – 75.000 kr.
María Hrönn Helgadóttir vegna þátttöku í U15 landsliðsverkefnum og æfingaferða til Reykjavíkur – 75.000 kr.
flokkur kk. Tindastóls vegna þátttöku í EURO Basketball Cup á Costa Brava á Spáni í sumar – 100.000 kr.
flokkur kvk. (15 ára) knattspyrna vegna æfingaferðar til Barcelona í júní 2026 – 100.000 kr.

Fráfarandi stjórn þakkar félagsmönnum fyrir gott samstarf og óskar nýrri stjórn velfarnaðar í sínum störfum.