Aðalfundur Knattspyrnudeildar Tindastóls

Aðalfundur Knattspyrnudeildar Tindastóls fyrir 2024 fór fram þann 23.05. sl.

Þar flutt skýrsla stjórnar þar sem fram kom að miklar áskoranir hafa verið í rekstri deildarinnar, enda mikið batterí að reka lið í efstu deild. Það hefur þó ekki komið niður á árangri liðanna sem lofar góðu.

Ársreikningar fyrir árið 2024 voru lagðir fram og samþykktir, en fram kom að tap ársins nam rúmlega 8 milljónum, bókfært eigið fé var neikvætt um 15,8 milljónir og skuld í árslok var 21,5 milljón. Stjórn hefur lagt hart að sér og búið er að semja um skuldir deildarinnar og var lögð fram áætlun sem gerir ráð fyrir afgangi strax á næsta ári.

Þá var komið að kjöri stjórnar, en Sunna Björk Atladóttir formaður gaf ekki kost á sér áfram. Enginn bauð sig fram og var liðnum kjör formanns og stjórnar frestað til 25.06. nk. í þeirri von að takast megi að finna formann og eftir atvikum annað stjórnarfólk fyrir þann tíma. Núverandi stjórn situr áfram formannslaus þar til tekist hefur að manna nýja stjórn. Engin breyting verður því á rekstri deildarinnar þó ekki sé starfandi formaður. Þurfi Aðalstjórn hins vegar á einhverjum tímapunkti að taka yfir mun ekki verða hægt að halda úti meistaraflokkum, en barna- og unglingastarf verður óbreytt þar sem það hefur sjálfstæðan rekstur og sér kennitölu.

Undir liðnum önnur mál var rætt um erfiðleika við mönnun íþróttastarfs, fjármál deildarinnar og margt fleira.

Skorað er á velunnara Knattspyrnudeildar að gefa kost á sér til starfa fyrir deildina. Það er bæði gaman og krefjandi að vera í stjórn og gefur reynslu sem nýtist vel á öðrum vettvangi.