Héraðsmót UMSS 17.júní 2013

Héraðsmót UMSS 17.júní 2013 í Sauðárkrókslaug.

Sundlaugin opnar kl. 10 og upphitun kl. 10:10, Mót kl. 10.30

Keppt verður í eftirfarandi greinum bæði í kvenna- og karlaflokki, : opnir flokkar.

200 m fjórsund  

100 m baksund 
100 m flugsund

100 m bringusund
100 m skriðsund

500 m skriðsund Kerlingin og Grettisbikarinn.

Fyrsta keppnin var háð árið 1940 og er þetta því sjötugasta og þriðja aldursár keppninnar. Í fyrra stóðu Sigurjón Þórðarson og Ingunn Kristjánsdóttir sem sundknappar Skagafjarðar.

4 x 50 m Boðsund.  Það eru fjórir keppendur af sama kyni í hverju liði og þarf hver keppandi að synda 50m frjálst sund.  Á mótinu í fyrra var stjórn sunddeildar hvött til að setja saman boðsundsveit og skorar nú á aðrar deildir Tindastóls og/eða fyrirtæki í Skagafirði til að setja saman boðsundsveit/ir

-Síðasti skráningardagur er til miðnættis 14. Júní: sund@tindastoll.is  Þarf að koma kt og nöfn og hvað liðið heitir einnig einstaklingsgreinar .

-Skilyrði að keppendur sem keppa á  mótinu þurfa að vera með skráð lögheimili í Skagafirði og ekki skráð undir öðru félagi. 

Verðlaunaafhending fer fram á sundlaugarbakka og verðlaun fyrir flottasta búninginn/fylgihlutinn karla og kvenna.

Hlökkum til að sjá keppendur og bæjarbúa.

Kveðja!

Stjórn sunddeildar Tindastóls