Linda Þórdís til Njarðvíkinga

Eins og segir á vefnum Karfan.is hefur Linda Þórdís skrifað undir samning við Njarðvík og spilar með þeim út tímabilið. 

Linda hefur spilað með yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og er nú í U-20 landsliðshópnum. 

Við óskum Lindu velfarnaðar á nýjum slóðum, það verður spennandi að fylgjast með henni í Domino's deild kvenna.