Jólamót Molduxa

Mynd tekin af facebook-síðu Molduxa.
Mynd tekin af facebook-síðu Molduxa.

23. jólamót Molduxa í körfubolta verður haldið annan í jólum, mánudaginn 26. desember í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. 


Mótið verður sett með veitingu Samfélagsviðurkenningar Molduxa kl. 10:55 og fyrstu leikir flautaðir á stundvíslega kl. 11:00.


Keppt verður í einum flokki, og raðast lið saman eftir styrkleika strax að lokinni fyrstu umferð.


Gjald á hvert lið er kr. 15.000,- og skal greitt fyrir fyrsta leik.
Skráning á netfangið pilli@simnet.is og stendur fram að hádegi jóladags.


Upplýsingar á Fésbókarsíðu Molduxa og Molduxar.is.
Allur ágóði rennur til körfuknattleiksdeildar Tindastóls.