Jólamót Júdódeildar 2019

Keppendur á jólamóti Júdódeildar 2019 ásamt lukkudýrinu Emiko Einarsdóttur (sitjandi fyrir miðju). M…
Keppendur á jólamóti Júdódeildar 2019 ásamt lukkudýrinu Emiko Einarsdóttur (sitjandi fyrir miðju). Mynd: Katharina Sommermeier

Iðkendur Júdódeildar Tindastóls kepptu á jólamóti sem fram fór í íþróttahúsinu á Sauðárkróki þann 18. desember.

Góð mæting var á jólamótið sem markar lok starfs júdódeildarinnar á árinu. Alls mættu 24 keppendur til leiks, 14 stelpur og 10 strákar. Það eru um það bil 30 krakkar sem æfa júdó í Sveitarfélaginu Skagafirði en æfingar fara fram á Sauðárkrók og Hofsós.

Margar glímur voru jafnar og skildi oft lítið á milli sigurs og taps. Allir mega þó vera sáttir við sína frammistöðu enda stóðu iðkendur sig mjög vel og gáfu lítið eftir í sínum glímum þó stundum væri við ofurefli að etja.

Allir fengu hengdan verðlaunapening um hálsinn eftir mótið og var keppendum og áhorfendum síðan boðið upp á pizzur sem er tilhlökkunarefni margra og runnu þær ljúft niður.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir sem Katharina Sommermeier tók.