Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss

Íslandsmeistarinn í 60m grindahlaupi karla. (Mynd FRÍ).
Íslandsmeistarinn í 60m grindahlaupi karla. (Mynd FRÍ).

 

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum ih., aðalhluti, fór fram helgina 24.-25. febrúar í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í Reykjavík.  Á mótinu keppti fremsta frjálsíþróttafólk landsins og var hörkukeppni í flestum greinum.  Sex Skagfirðingar voru á meðal keppenda:  Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ísak Óli Traustason, Jóhann Björn Sigurbjörnsson, Sveinbjörn Óli Svavarsson, Vignir Gunnarsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.

HÉR má sjá öll úrslit.

Helstu fréttir frá fyrri degi:

Jóhann Björn Sigurbjörnsson:  2. sæti í 60m hlaupi 7,00sek. (6,97sek í undanúrslitum, 2/100sek frá pm).

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir: 2.-3. sæti í hástökki 1,70m.

Ísak Óli Traustason: 6. sæti í stangarstökki 4,02m (pm - bætti sig um 12cm).

Sveinbjörn Óli Svavarsson: 7. sæti í 60m hlaupi 7,24sek. (7,23sek í undanúrslitum, jöfnun á pm).

Vignir Gunnarsson: 8. sæti í kúluvarpi 12,45m (pm).

Helstu fréttir frá seinni degi:

Ísak Óli Traustason: 1. sæti í 60m grindahlaupi 8,26sek (pm - bætti sig um 8/100sek), og 2. sæti í langstökki 6,75m.

Sveinbjörn Óli Svavarsson: 5. sæti í 200m hlaupi 23,07sek (pm).

Hrafnhildur Gunnarsdóttir: 8. sæti í kúluvarpi 10,20m.

UMSS endaði í 4. sæti í verðlaunum talið, af 12 félögum og samböndum sem kepptu á mótinu, og í 6. sæti í heildarstigakeppninni !

Til hamingju öll !