Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum

 

Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni í Reykjavík laugardaginn 15. febrúar.  Fimm aðilar sendu lið til keppni bæði í flokkum karla og kvenna.  Það voru Norðlendingar, sem sendu sameiginlegt lið eins og undanfarin ár, Breiðablik, FH, HSK og ÍR sem sendi 3 lið í báða flokka, auk þess sem Ármann sendi  lið til keppni í karlaflokki.

ÍR-ingar áttu titla að verja í kvennaflokki og samanlagðri stigakeppni, en Norðlendingar sigruðu í karlakeppninni í fyrra.  Keppnin núna var æsispennandi, en úrslit urðu sem hér segir:

Kvennaflokkur:  1. ÍR  70 stig,  2. Norðurland  70 stig,  3. FH  64 stig.

 

Karlaflokkur:  1. ÍR  75 stig,  2. Norðurland  71 stig,  3. FH  68 stig.

 

Samanlagt:  1. ÍR  145 stig,  2. Norðurland  141,  3. FH  132 stig,  4. Breiðablik  82 stig,  5. ÍR-b  81 stig,  6. ÍR-c  52,5 stig,  7. Ármann  52,5 stig,  8. HSK  52 stig.

 

Árangur Skagfirðinganna sem kepptu í liði Norðurlands:

Jóhann Björn Sigurbjörnsson:  Sigraði í 60m hlaupi á 6,95sek, bætti tíma sinn frá Reykjavíkurleikunum sem var besti tími Íslendings frá 2009.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir:  2. sæti í hástökki með 1,66m, jöfnun á skagfirska héraðsmetinu sem hún jafnaði líka fyrir hálfum mánuði.

Guðjón Ingimundarson:  2. sæti í 60m grindahlaupi á 8,95sek sem er nálægt hans besta tíma.

Jóhann Björn og Daníel Þórarinsson voru svo í sveit Norðlendinga sem sigraði í 4x400m boðhlaupi.  Tími sveitarinnar var 3:19,69mín, sem er næstbesti tími íslenskrar sveitar og aðeins 0,58sek frá Íslandsmeti ÍR frá 2012.

 

Það er ljóst að frjálsíþróttir standa vel á Norðurlandi og samvinnan þar er að skila árangri.

Til hamingju Norðlendingar !

 

ÚRSLIT !