Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum

 

48. Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum fór fram í Reykjavík helgina 31. ágúst og 1. september.

Norðlendingar sendu sameiginlegt lið, skipað íþróttafólki úr UMSS, UFA, UMSE og HSÞ.

 

Úrslit heildarstigakeppninnar:

1. ÍR 174,5 stig, 2. FH 166 stig, 3. Norðurland 150 stig, 4. HSK 120,5 stig, 5. Breiðablik 118 stig.  Sama röð var einnig á þremur efstu liðum bæði í karla- og kvennaflokki.

 

Árangur Skagfirðinganna:

 

Björn Margeirsson varð í 2. sæti í 1500m og 3. sæti í 800m hlaupum.

 

Guðjón Ingimundarson varð í 3. sæti í 400m grind. og 4. sæti í 110m grindahlaupi.

 

Þorgerður Bettína Friðriksdóttir varð í 4. sæti í 400m grind. og 800m hlaupi.

Þá var hún einnig í sveit Norðlendinga í 1000m boðhlaupi kvenna sem varð í 2. sæti.

 

Karlasveit Norðlendinga sigraði í 4x100m boðhlaupi og varð í 2. sæti í 1000m boðhlaupi, en í báðum sveitunum voru 3 Skagfirðingar, Daníel Þórarinsson, Guðjón Ingimundarson og Jóhann Björn Sigurbjörnsson.

 

Öll úrslit má sjá HÉR !