Þann 24. Febrúar, verður opnuð ný skráningar- og greiðslusíða NÓRI

Kæru foreldrar, forráðamenn og íþróttaiðkendur,

 

Þann 24. Febrúar, verður opnuð ný skráningar- og greiðslusíða NÓRI, á vegum Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) og Sveitarfélags Skagafjarðar.

Til að byrja með verður hægt að skrá iðkendur sem eru á æfingum/námskeiðum hjá UMF Tindastól í frjálsum, júdó, knattspyrnu, körfubolta og í sundi, einnig geta þeir sem eru á æfingum/námskeiðum hjá Ungmenna- og Íþróttafélaginu Smára í Varmahlíð skráð sínar iðkendur.

Skráning fer fram hér https://umss.felog.is/ 

 

Leiðbeiningar um skráningar má finna: http://greidslumidlun.is/media/1142/leidbeiningar-forradamanna.pdf

 

Nánari upplýsingar veitir Thelma Knútsdóttir framkvæmdastjóri UMSS á netfanginu umss@umss.is eða í síma 453 5460