Skráning hafin í Vetrar T.Í.M

Skráning hafin í Vetrar T.Í.M.

 

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Vetrar T.Í.M. og geta foreldrar barna sem stunda íþróttir hjá UMF.Tindastóli skráð þau á heimasíðu Svf. Skagafjarðar. Öll börn sem æfa fótbolta, körfu, frjálsar og sund hjá Tindastóli skal skrá inn í kerfið. Skráningu lýkur þriðjudaginn 23.október.

 

Nú geta foreldrar barna sem stunda íþróttir hjá UMF.Tindastóli skráð þau í Vetrar T.Í.M. .Slóðin er http://tim.skagafjordur.is/is/forsida/. Einnig er hægt að fara í gegnum íbúagáttina.

Öll börn sem æfa fótbolta, körfu, frjálsar og sund hjá Tindastóli skal skrá inn í kerfið.  Skráningu lýkur þriðjudaginn 23.októberAthugið að skráningin nú er bindandi fyrir allan veturinn en hægt verður að afskrá og nýskrá börn í byrjun janúar 2013. Hægt er að prenta út æfingatöflu hvers barns en æfingatöflur og gjöld er einnig að finna á heimasíðum deildanna, www.tindastoll.is

Þetta er skráninga-og innheimtukerfi til þess að halda utan um þátttöku barna í skipulögðu íþrótta-og tómstundastarfi. Kerfið er hannað til þess að auðvelda foreldrum, þjálfurum, íþróttadeildunum og sveitarfélaginu að halda utan um iðkendaskrána og er rukkunin gerð með einum sameiginlegum greiðsluseðli  fyrir allar deildir. Fyrri greiðsluseðillinn verður sendur út í  lok október og sá síðari í febrúar 2013. Foreldrar hvers barns með lögheimili í Sveitarfélaginu Skagafirði á aldrinum 6-18 ára eiga rétt á hvatapeningum 8.000,-krónum  einu sinni á ári að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Heildargreiðsla fyrir íþrótta-tómstunda og tónlistarnám barns þarf að ná að lágmarki 30.000.- á árinu 2012 og skal barnið stunda fleira en eina íþrótt, t.d. íþrótt og tónlistarnám, tvær íþróttagreinar eða íþrótt og skátastarf. Systkini geta nýtt sér eina hvatapeninga ef upphæðin nær að lágmarki 30.000.-fyrir þau til samans. Hvatapeningar eru ekki greiddir út heldur lækkar heildargreiðsla sem þeim nemur. Athugið að greiðsluseðlar birtast i heimabanka en eru ekki sendir heim til greiðanda.

Vanti aðstoð við skráninguna bendum við ykkur á að koma í Hús frítímans, Sæmundargötu 7b á opnunartíma hússins og fá aðstoð og upplýsingar þar eða hringja í síma 4556109

Allar fyrirspurnir skal senda á netfangið tim@skagafjordur.is