María Finnbogadóttir Íslandsmeistari í svigi

María Finnbogadóttir og Sturla Snær Snorrason Íslandsmeistarar í svigi. Myndin er fengin af heimasíð…
María Finnbogadóttir og Sturla Snær Snorrason Íslandsmeistarar í svigi. Myndin er fengin af heimasíðu SKÍ.

María Finnbogadóttir keppti um síðast liðnu helgi á Skíðamóti Íslands í Böggviðsstaðafjalli við Dalvík. María varð Íslandsmeistari í svigi, bæði í 18-20 ára stúlkna og kvennaflokki.  Er þetta í fyrsta sinn sem að skíðadeild Tindastóls eignast Íslandsmeistara í Alpagreinum. 

Skíðadeildin er afskplega stolt af Maríu og óskum við henni innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Skíðamót Íslands á heimasíðu Skíðasambands Íslands.


Athugasemdir