Pétur Rúnar íþróttamaður Skagafjarðar - Martin besti þjálfarinn

Pétur Rúnar Birgisson var valinn besti íþróttamaður Skagafjarðar og Israel Martin besti þjálfari ársins í dag. Þá voru einnig Eva Rún, Jón Gísli, Ragnar og Telma Ösp tilnefnd sem ung og efnileg í körfuknattleik.

Ungir og efnilegir tóku við viðurkenningum á hátíðlegri athöfn í Húsi Frítímans í dag en Pétri og Martin voru færðir bikararnir á æfingu. 

Lið meistaraflokks karla var einnig tilnefnt sem lið ársins. 

Vegna anna hjá meistaraflokki við æfingar veitti Stefán Jónsson verðlaununum móttöku í Húsi Frítímans. Hér má sjá þegar hann mætti í íþróttahúsið og afhenti Pétri, Helga Rafni og Martin verðlaunin ásamt fríðu föruneyti.