Nýtt skráningakerfi UMSS

Kæru foreldrar, forráðamenn og íþróttaiðkendur.

Þann 24. febrúar verður opnuð ný skráningar- og greiðslusíðan NÓRI á vegum Ungmennasambands Skagafjarðar (UMSS) og Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Til að byrja með verður hægt að skrá iðkendur sem eru á æfingum/námskeiðum hjá UMF Tindastól í frjálsum, júdó, knattspyrnu, körfubolta og í sundi. Einnig geta þeir sem eru á æfingum/námskeiðum hjá Ungmenna- og Íþróttafélaginu Smára í Varmahlíð skráð sína iðkendur.

Skráning fer fram hér.

Leiðbeiningar um skráningar má finna hér.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Knútsdóttir, framkvæmdastjóri UMSS, á netfanginu umss@umss.is eða í síma 453 5460.