Körfuknattleiksdeild Tindastóls semur við Taiwo Badmus

Taiwo Badmus   Mynd Taiwo
Taiwo Badmus Mynd Taiwo

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Taiwo Badmus um að leika með liðinu næsta tímabil 2021-2022.

Taiwo er með breskt-írskt vegabréf og kemur því til liðsins sem Bosmaður.

Taiwo er 28 ára og 200cm hár framherji og mikill íþróttamaður.  Lék síðast með  Leyma Basquet Coruna sem er einnig sama lið og Sigtryggur Arnar Björnsson lék með í lok síðasta tímabils í spænsku LEB Oro deildinni. Taiwo hefur einnig verið hluti af Írska landsliðinu síðustu ár.

Við hjá Tindastól bindum miklar vonir við kappann og vonumst eftir honum á parketið í Síkinu þegar líður á ágúst.