Dósa- og flöskusöfnun Unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Mánudaginn 9. apríl næstkomandi munu börn og unglingar hjá Unglingaráði körfuknattleiksdeildar Tindastóls ganga í hús og safna flöskum og dósum.

Áætlað er að þau verði á ferðinni milli kl. 17:00 – 20:00 þennan dag. Sé enginn heima við en áhugi á að styðja við starfið hjá krökkunum má skilja eftir poka með flöskum úti við á tröppum með miða, merkt Tindastól.

Við vonum að þið takið vel á móti krökkunum.

Vilji svo til að enginn komi til þín, en áhugi á að losna við flöskur, þá má koma með þær í Vörumiðlun frá  kl.17:30 - 21:00 mánudaginn 9. apríl.