Orðsending til stuðningsmanna TIndastóls

Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls vinnur enn að því að finna nýjan þjálfara fyrir liðið en þjálfarar liðsins, Pieti Poikola og Harri Mannonen, voru leystir undan samningi við liðið í gærmorgun. Stjórn og liðsmenn Tindastóls vilja koma því á framfæri við stuðningsmenn sína að liðið ætli að standa saman sem aldrei fyrr og muni ekki leggja árar í bát. Þau biðla til stuðningsmanna að gera hið saman og þjappa sér að baki liðinu.

Sem fyrr segir vinnur stjórnin hörðum höndum að því að finna nýjan þjálfara. Kári Marísson hefur boðið fram þjónustu sína, en hann hefur starfað um árabil með liðinu og var m.a. aðstoðarþjálfari liðsins á síðasta leiktímabili. Kári kemur til með að brúa bilið við þjálfun liðsins á meðan leit stendur yfir að nýjum þjálfara og er honum færðar miklar þakkir fyrir það.

Áfram Tindastóll!