Leikir helgarinnar

Um helgina var þónokkuð um að vera hjá yngri flokkunum okkar og aldeilis þétt dagskrá í Síkinu.  Króksamótið var haldið á laugardeginum auk þess sem fjórir leikir voru spilaðir, þar af þrír hér heima. 
Á laugardeginum fór drengjaflokkur suður og spilaði gegn Breiðablik. Drengjaflokkur sigraði 70-85. Í þessum leik var Pétur Rúnar stigahæstur með 25 stig, Hannes með 23 stig, Viðar 14, Finnbogi var með 10, Hlynur 9 og Pálmi 4. 
Stúlknaflokkur átti leik hér heima gegn Haukum. Sá leikur fór 35-52 fyrir Haukum. Bríet var stigahæst hjá stelpunum með 13 stig, Linda með 11, Jóna með 6, Hafdís 3 og Telma 2. 
Í dag tók svo 10. flokkur karla á móti Keflavík í bikarleik. Strákunum gekk ekki nógu vel og töpuðu leiknum, 37-93. Þá kom Snæfell/Skallagrímur og keppti á móti unglingaflokknum okkar. Aðkomuliðið mætti mjög fámennt sökum veikinda og meiðsla, eða aðeins með fimm menn. Af þeim var einn leikmaður veikur og kláraði því ekki leikinn. Tindastólsmenn léku þá einnig með fjóra leikmenn inn á, vel gert hjá þeim. Tindastóll hafði sigur, 100-60.
Næsti leikur Tindastóls er á fimmtudaginn þegar meistaraflokkur karla á leik í Þorlákshöfn.