Silfur og brons á Afmælismóti Júdósambands Íslands

Arnór Freyr Fjólmundsson og Þóranna Ásdís Fjólmundsdóttir. Mynd: Einar Örn Hreinsson.
Arnór Freyr Fjólmundsson og Þóranna Ásdís Fjólmundsdóttir. Mynd: Einar Örn Hreinsson.

Afmælismót Júdósambands Íslands fyrir yngri flokka var haldið í húsnæði Júdófélags Reykjavíkur í dag. Júdódeild Tindastóls átti tvo fulltrúa á mótinu.

Fjórir iðkendur Júdódeildar Tindastóls voru skráðir til leiks á mótinu -- en tveir þeirra, Þorgrímur Svavar Runólfsson og Tsvetan Tsvetanov Michevski, hættu við þátttöku vegna meiðsla. Það voru því tveir iðkendur ásamt þjálfara sem héldu til Reykjavíkur í gær og mættu til leiks í morgun í húsnæði JR í Reykjavík. Mótið hófst klukkan 10 eftir vigtun sem fór fram frá 9 til 9:30.

Systkinin Arnór Freyr Fjólmundsson og Þóranna Ásdís Fjólmundsdóttir kepptu fyrir Júdódeild Tindastóls. Þóranna Ásdís var að keppa á sínu fyrsta JSÍ móti en á þeim er miðað við 11 ára aldurstakmark. Þar atti hún kappi við drengi sökum þess að ekki voru aðrar stúlkur sem kepptu í hennar aldurs- og þyngdarflokki.  Hún stóð sig mjög vel í sínum glímum, barðist vel og endaði í þriðja sæti. Arnór Freyr er öllu reyndari og endaði hann í öðru sæti eftir mjög góða frammistöðu.

Eftir mót var farið keilu í Egilshöll þar sem sú skemmtilega hefð hefur skapast að refsing fyrir að vinna ekki er tíu armbeygjur. Eftir spennandi keiluleik var brugðist við góðri matarlyst á viðeigandi hátt áður en haldið var heim á leið.

Myndirnar hér fyrir neðan eru frá keppnisferðinni.