Foreldraæfing vorannar

Þátttakendur á foreldraæfingu. Mynd Auður Inga Ingimarsdóttir.
Þátttakendur á foreldraæfingu. Mynd Auður Inga Ingimarsdóttir.

Foreldraæfing vorannar var haldin í gær þar sem iðkendur fengu tækifæri á því að taka foreldra sína í karphúsið og kenna þeim eitthvað í júdó.

Foreldrar hafa oft verið duglegir að nýta sér foreldraæfingar til að prófa íþróttina sem krakkarnir þeirra eru að æfa. Það var engin undantekning í gær þar sem sumir foreldrar voru að koma á sína sjöttu foreldraæfingu og ekki laust við að þeir séu farnir að tileinka sér nokkur trix í íþróttinni. Myndirnar sem fylgja fréttinni voru teknar á foreldraæfingu af Auði Ingu Ingimarsdóttur.