Fimm norðurlandsmeistaratitlar til Júdódeildar Tindastóls

Frá Norðurlandsmóti á Blönduósi. Mynd: Hjálmar Ólafsson.
Frá Norðurlandsmóti á Blönduósi. Mynd: Hjálmar Ólafsson.

Norðurlandsmót í Júdó var halið á Blönduósi í dag. Alls mættu 34 keppendur frá þremur júdófélögum á Norðurlandi: Tindastóli, Pardusi á Blönduósi og KA á Akureyri.

Norðurlandsmót hafa verið haldin á Blönduósi frá árinu 2015 og er þetta fjórða árið í röð sem það er haldið. Þetta er samstarfsverkefni júdófélaganna þriggja á Norðurlandi þó að mest mæði á Blönduósingum sem bjóða upp á fyrsta flokks aðstöðu og halda utan um skipulagið. Áður átti að halda mótið í byrjun nóvember en því varð að fresta vegna slæms veðurs.

Mótið hófst á sameiginlegri upphitun keppenda og svo reið yngri hópurinn á vaðið þegar keppnin sjálf hófst rétt upp úr klukkan 11. Það er alltaf skemmtilegt að fylgjast með yngstu iðkendunum sem margir eru að keppa á sínu fyrsta móti og standa sig ávalt eins og hetjur. Eftir að keppni yngri hóps lauk fór verðlaunaafhending fram áður en eldri hópurinn hóf keppni. Þar áttust við reyndari keppendur og var oft hart barist.

Eftir keppni var öllum keppendum boðið upp á súpu og pasta á B&S sem rann mjög vel ofan í mannskapinn eftir orkufrek átök.

Þátttakendur frá Júdódeild Tindastóls voru alls tíu og fimm þeirra urðu Norðurlandsmeistarar í sínum aldurs- og þyngdarflokki og verður það að teljast frábær árangur. Það er gaman að sjá hvernig iðkendur eflast með hverju árinu sem líður og þó nokkrir þeirra hafa æft frá því Júdódeild Tindastóls var endurvakin fyrir rúmum fjórum árum síðan.

Eins og venjulega stóðu Blönduósingar sig frábærlega sem gestgjafar og eiga mikið hrós skilið fyrir sitt starf.

Hér fyrir neðan má sjá nánari úrslit mótsins og nokkrar myndir sem Hjálmar Ólafsson tók.

Úrslit á Norðurlandsmóti í Júdó 2018