Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks 2016

Hressir hátíðargestir
Hressir hátíðargestir

Uppskeruhátíð frjálsíþróttafólks í Skagafirði var haldin á Sauðárkróki laugardaginn 19. nóvember.  Frjálsíþróttaráð UMSS stóð fyrir hátíðinni, en allir iðkendur frjálsíþrótta í héraðinu keppa undir merki þess. 

Veittar voru eftirtaldar viðurkenningar fyrir góðan árangur á árinu 2016.

Frjálsíþróttakona UMSS 2016: Þóranna Ósk Sigurjónsd.

Frjálsíþróttakarl UMSS 2016: Ísak Óli Traustason.

Efnilegasta stúlka 14 ára -: Andrea Maya Chirikadzi.

Efnilegasti piltur 14 ára -: Andri Snær Tryggvason.

Íslandsmeistarar 2016:

Ísak Óli Traustason: 110m grind. og langstökk 20-22 ára.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir: 100m grind. 20-22 ára.

Andrea Maya Chirikadzi: Kúluvarp 13 ára.

Landsmótsmeistarar á ULM 2016:

Andrea Maya Chirikadzi: Kúluvarp 13 ára.

Unnur María Gunnarsdóttir: 60m hlaup 11 ára F-20.

Til hamingju með gott ár !