Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum

Það stefnir í skemmtilegt mót á Sauðárkróksvelli 4.- 5. júli nk. Meistaramót Íslands 11-14 ára fer þar fram undir styrkri stjórn Frjálsíþróttaráðs UMSS (Frjálsíþróttadeild Tindastóls og Ungmenna- og Íþróttafélagið Smári, Varmahlíð).

Síðustu ár hafa um 200 keppendur verið skráðir til leiks á Meistaramót Íslands 11-14 ára utanhúss. 

Keppnin hefst á Sauðárkróksvelli kl.10:00 og er til kl.17:00 á laugardeginum  og heldur áfram á sunnudeginum kl. 09:00. Mótinu lýkur um kl.15:00.

Sjá nánar í mótaforrit Frjálsíþróttrasamband Íslands FRÍ  http://thor.fri.is Skráning á mótið er til og með 30. júní. Endanlegur tímaseðill verður birtur á Þór þegar skráningar liggja fyrir.