Andrea Maya vann gull í kúluvarpi 14 ára stúlkna

 

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss, fyrir 11 – 14 ára, fór fram í Íþróttahöllinni í Kaplakrika í Hafnarfirði helgina 28.-29. janúar.  Keppendur voru alls um 300, þar af 4 Skagfirðingar.  Andrea Maya Chirikadzi og Stefanía Hermannsdóttir kepptu í flokki 14 ára stúlkna, og Indriði Ægir Þórarinsson og Óskar Aron Stefánsson í flokki 13 ára pilta.

Á fyrri degi mótsins sigraði Andrea Maya Chirikadzi í kúluvarpi í flokki 14 ára stúlkna, kastaði 9,64m.

Til hamingju Andrea Maya !  Allir keppendur UMSS stóðu sig með miklum sóma.

Hér má sjá keppendalista, tímaseðil og úrslit.