ULM 2013 á Höfn í Hornafirði

 

16. Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina.  Þrátt fyrir fremur kalda og vindasama daga, gekk mótið vel fyrir sig og þátttakendur skemmtu sér vel.

Keppendur UMSS í frjálsíþróttum unnu til 12 verðlauna á mótinu, 2 gull, 5 silfur og 5 brons.

 

Verðlaunahafar UMSS:

 

Vala Rún Stefánsdóttir (14):  1. sæti í spjótkasti, 2. sæti í kúluvarpi og 2.-3.sæti í hástökki.

Stúlknasveit UMSS (16-17):  1. sæti í 4x100m boðhlaupi. Í sveitinni voru Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Ragna Vigdís Vésteinsdóttir og Þorgerður Bettína Friðriksdóttir.

Fríða Ísabel Friðriksdóttir (15):  2. sæti í 100m hlaupi og langstökki.

Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (16-17):  2. sæti í 100m hlaupi og 3.-4. sæti í hástökki..

Berglind Gunnarsdóttir (12):  3. sæti í kúluvarpi.

Haukur Ingvi Marinósson (15):  3. sæti í kúluvarpi.

Ragna Vigdís Vésteinsdóttir (16-17):  3. sæti í langstökki.

Piltasveit UMSS og fl. (14):  3. sæti í 4x100m boðhlaupi.  Rúnar Ingi Stefánsson og Halldór Broddi Þorsteinsson mynduðu sveitina ásamt hlaupurum úr HSS og UDN.

 

ÚRSLIT !

 

Til hamingju með árangurinn.