Smáþjóðaleikarnir


Smáþjóðaleikarnir fara fram á Íslandi dagana 1.- 6. júní.  Keppt er í 11 greinum íþrótta.

Í frjálsíþróttakeppninni verða fulltrúar 9 landa, það eru auk Íslands, Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Luxemborg, Malta, Monakó, San Marínó og Svartfjallaland.

Tveir Skagfirðingar hafa verið valdir til keppni í íslenska liðinu, Jóhann Björn Sigurbjörnsson sem keppir í 100m hlaupi og boðhlaupum, og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir sem keppir í hástökki.

Tímaseðill í frjálsíþróttum.