MÍ í frjálsíþróttum 2013, aðalhluti

 

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum 2013, aðalhluti, fór fram á Þórsvelli á Akureyri helgina 27. - 28. júlí. Keppendur voru um 150, þar af 5 frá UMSS.

 

Skagfirðingarnir unnu tvenn verðlaun á mótinu:

Björn Margeirsson varð í 2. sæti í 1500m hlaupi á 4:02,04mín.

Jóhann Björn Sigurbjörnsson varð í 3. sæti í 100m hlaupi á 11,09sek.

 

Aðrir Skagfirðingar stóðu sig einnig vel.

Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir varð í 5. sæti í 100m grindahlaupi og hástökki.

Sveinbjörn Óli Svavarsson varð í 5. sæti í langstökki.

Daníel Þórarinsson varð í 6. sæti í 200m og 400m hlaupum.

 

Í heildarstigakeppni mótsins sigraði lið ÍR með 37.031 stig, FH varð í 2. sæti með 27.321 stig og UFA í 3. sæti með 20.888 stig.  Líð UMSS varð í 8. sæti af 12 liðum, með 4.581 stig.  

 

ÚRSLIT !