MÍ-aðalhluti í frjálsíþróttum


88. Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum verður haldið á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði nú um helgina, 12.-13.  júlí. 


Landsins besta frjálsíþróttafólk mætir til leiks, nálægt 200 keppendur frá 13 félögum og samböndum.  Að vanda eru ÍR-ingar fjölmennastir (65), en síðan koma Blikar og FH-ingar (33), Ármenningar og Akureyringar (14), Skarphéðnar (9) og Skagfirðingar (7), aðrir með fámennari sveitir. 


Skagfirska frjálsíþróttafólkið hefur í sumar náð glæsilegum árangri og sýnt miklar framfarir, það verður gaman að fylgjast með þeim í keppni við aðra í besta flokki hérlendis.


Fylgist með þeim HÉR !