Jóhann Björn byrjar sumarið vel


Vormót HSK fór fram á Selfossi laugardaginn 17. maí.

Meðal keppenda var Jóhann Björn Sigurbjörnsson úr Tindastól, sem sigraði í 100m og 400m hlaupum og bætti sinn fyrri árangur í báðum greinum.

Jóhann Björn hljóp 100m á 10,99 sek og 400m á 48,82 sek. Þessi árangur vekur góðar væntingar fyrir sumarið.

.