4. Landsmót UMFÍ 50+


Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í fjórða sinn á Húsavík helgina 20.-22 júní.

Mótið var haldið fyrsta sinni á Hvammstanga árið 2011 og heppnaðist svo vel, að ákveðið var að gera mótið að árlegum viðburði.  Síðan hafa mótin verið haldin í Mosfellsbæ og Vík í Mýrdal.

 

Mótið á Húsavík verður sett á föstudagskvöldi kl. 20 með hátíðlegri athöfn.

Keppt er í fjölmörgum greinum á mótinu s.s. frjálsíþróttum, sundi, golfi, blaki, boccia, bridds, dansi, skák og ýmsum starfsíþróttum. Auk þess verða ýmsar sýningar og kynningar á greinum, sem e.t.v. verða keppnisgreinar í framtíðinni.

 

Frjálsíþróttakeppni mótsins hefst á laugardegi kl. 14, og er fram haldið á sunnudegi kl. 10.

Skagfirðingar hafa alltaf teflt fram harðsnúnum keppendum í frjálsíþróttakeppninni, sem og öðrum greinum.