Norðurlandamót ungmenna í fjölþrautum

 

Norðurlandamót ungmenna í fjölþrautum frjálsíþrótta fer fram í Kuortane í Finnlandi dagana 10.-11. júní.  Keppt er í tugþraut pilta og sjöþraut stúlkna, í aldursflokkunum 20-22 ára, 18-19 ára og 16-17 ára.  Frjálsíþróttasamband Íslands hefur valið keppendur sína, sem eru:

Ísak Óli Traustason UMSS (20-22).

Tristan Freyr Jónsson ÍR (20-22).

Irma Gunnarsdóttir Breiðabliki (18-19).

Helga Margrét Haraldsdóttir ÍR (16-17).

Kolbeinn Tómas Jónsson ÍR (16-17 ára).

Þjálfarar og fararstjórar verða Þráinn Hafsteinsson og Brynjar Gunnarsson.

Við óskum hópnum góðrar ferðar og munum að sjálfsögðu fylgjast vel með !