Ísak Óli vann brons í sjöþraut á MÍ.

Ísak Óli Traustason
Ísak Óli Traustason

 

 

 

Meistaramót Íslands í fjölþrautum frjálsíþrótta fór fram í Frjálsíþróttahöllinni í Hafnarfirði helgina 21. - 22. janúar.

Keppt var í sjöþraut karla, einnig pilta 18 -19 ára og 16 -17 ára og í fimmtarþraut pilta 15 ára og yngri.

Konur kepptu í fimmtarþraut kvenna, stúlkna 16 -17 ára og 15 ára og yngri.

Einn Skagfirðingur var meðal keppenda á mótinu, Ísak Óli Traustason.  Hann varð í 3. sæti í sjöþraut karla, hlaut 4673 stig og bætti sinn fyrri árangur um 294 stig.

Sigurvegari í sjöþrautinni var Tristan Freyr Jónsson ÍR og Ingi Rúnar Kristinsson Breiðabliki var í 2.sæti.

Árangur Ísaks Óla í einstökum greinum: 60m hlaup 7,23sek, hástökk 1,79m (pm/ih), langstökk 6,69m (pm/ih), kúluvarp 10,61m, 60m grind. 8,50sek (pm), stangarstökk 3,20m (pm-j), 1000m hlaup 2:54,13mín (pm).  

Úrslit á MÍ-fjölþraut 2017.

 

MÍ-öldunga fór fram á sama stað og tíma, þar keppti m.a. skagfirski "öldungurinn" Theodór Karlsson.

Theodór, sem keppti í flokki 40-44 ára, varð Íslandsmeistari í öllum 4 greinunum sem hann keppti í, hástökki (1,60 m), langstökki (5,47 m), stangarstökki (3,20m) og þrístökki (10.78m).

Úrslit á MÍ-öldunga 2017.